Notkunarskilmálar Sayso

Útgáfa 2026-09-27 · English

1. Um skilmálana

Þessir skilmálar gilda um Sayso, forritið og netþjónustuna sem því fylgir (saman „Sayso“), sem Outzone (outzone.is) („Outzone“, „við“) veitir. Með því að stofna aðgang eða nota Sayso samþykkir þú skilmálana. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu ekki nota Sayso.

2. Gervigreind gerir mistök

Sayso notar gervigreind frá þriðju aðilum. Gervigreind getur haft rangt fyrir sér, sagt hálfsannleik, byggt á úreltum upplýsingum, misskilið það sem þú segir eða sést á skjánum og gert annað en þú ætlaðir.

Þú verður að yfirfara allt sem Sayso segir eða býr til áður en þú treystir á það. Sayso kemur ekki í stað sérfræðiráðgjafar (lögfræði-, fjármála-, heilbrigðis-, skatta- eða annarrar) og ekkert sem það segir telst slík ráðgjöf.

3. Aðgerðir sem Sayso framkvæmir fyrir þig

Sayso getur, að beiðni þinni eða samkvæmt stillingum þínum, stýrt mús og lyklaborði, opnað forrit og vefsíður, sent og breytt tölvupósti, viðburðum og skjölum og notað þjónustur sem þú tengir (t.d. Google, MCP-þjóna og vefþjónustur).

Þú berð ein(n) ábyrgð á öllu sem gert er í tölvunni þinni og aðgöngum þínum í gegnum Sayso, þar með talið sendum skilaboðum, kaupum, breytingum og eyðingu. Þú getur stöðvað Sayso hvenær sem er (⌥ Esc / Alt + Esc) og slökkt á stjórn á tölvu í stillingum. Taktu afrit af öllu sem skiptir máli.

4. Engin ábyrgð á virkni

Sayso er veitt „eins og það er“ og „eftir því sem það er tiltækt“, án nokkurrar ábyrgðar, beinnar eða óbeinnar, þar á meðal um hæfi til tiltekinna nota, nákvæmni, aðgengi eða að það sé laust við villur og truflanir.

5. Takmörkun ábyrgðar

Að því marki sem lög leyfa bera hvorki Outzone né Sayso, eigendur þeirra, starfsfólk né samstarfsaðilar ábyrgð á tjóni af nokkru tagi sem rekja má til notkunar eða ónothæfni Sayso — hvort sem um er að ræða beint eða óbeint tjón, afleitt tjón, tapaðan hagnað, glötuð eða skemmd gögn, mistök gervigreindar, aðgerðir sem Sayso framkvæmir, send skilaboð eða athafnir og athafnaleysi þjónustu þriðju aðila.

Ef ekki er heimilt að undanskilja ábyrgð samkvæmt lögum takmarkast heildarábyrgð okkar við þá fjárhæð sem þú greiddir fyrir Sayso á 12 mánuðum áður en atvikið sem krafan byggir á átti sér stað.

Ekkert í skilmálunum takmarkar ábyrgð sem ekki má takmarka lögum samkvæmt, svo sem vegna ásetnings eða stórfellds gáleysis, né ófrávíkjanleg réttindi þín sem neytanda.

6. Þjónusta þriðju aðila

Sayso byggir á þjónustu annarra, þar á meðal Anthropic (Claude), OpenAI (tal), Microsoft Azure (raddir), Google, Stripe og þjónustu sem þú tengir sjálf(ur). Skilmálar þeirra gilda um notkun þína á þeim. Við berum ekki ábyrgð á aðgengi, efni eða háttsemi þeirra.

7. Gögnin þín

Skjáminnið er geymt á tölvunni þinni sem texti; myndir eru ekki geymdar. Þegar þú spyrð er aðeins það sem þarf til að svara sent til gervigreindarþjónustanna.

Ef þú kveikir á samstillingu eru stillingar, bottar, spjall og skjáminni (texti) einnig geymd dulkóðuð á þjóni Sayso í Bretlandi svo þú getir notað þau í annarri tölvu. Þú getur slökkt á samstillingu og eytt afritinu í skýinu hvenær sem er í stillingum. Þú berð ábyrgð á eigin afritum.

Notaðu Sayso ekki til að taka upp skjái með persónuupplýsingum annarra nema þú hafir heimild til þess.

8. Einingar og áskriftir

Einingar eru notaðar þegar Sayso notar gervigreind eða rödd. Verð birtast í forritinu og geta breyst. Keyptar einingar renna ekki út og eru ekki endurgreiddar nema lög kveði á um annað. Áskrift endurnýjast mánaðarlega þar til henni er sagt upp og henni má segja upp hvenær sem er frá lokum yfirstandandi tímabils.

Með kaupum á stafrænu efni sem afhent er strax samþykkir þú að það sé afhent þegar í stað og staðfestir að réttur til að falla frá samningi falli niður þegar afhending hefst, að því marki sem lög leyfa.

9. Leyfileg notkun

Þú mátt ekki nota Sayso til að brjóta lög, brjóta á réttindum annarra, valda öðrum skaða, senda ruslpóst, ráðast á eða ofhlaða kerfi eða komast fram hjá takmörkunum eða öryggi okkar. Við getum lokað aðgangi sem brýtur skilmálana.

10. Skaðleysi

Þú bætir Outzone kröfur þriðju aðila sem rekja má til notkunar þinnar á Sayso í andstöðu við skilmálana eða lög.

11. Breytingar

Við getum breytt Sayso og skilmálunum. Ef skilmálar breytast efnislega biður forritið þig um að samþykkja þá aftur. Við getum hætt að bjóða Sayso með hæfilegum fyrirvara.

12. Lög og varnarþing

Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningur fer fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur, án þess að takmarka rétt neytanda til að höfða mál í heimalandi sínu þar sem lög leyfa.

Samband: outzone.is.